Veislufjör hringinn í kringum landið m/ Mr Silla, Snorra Helga og Hugleiki Dagssyni

Gerið ykkur klár í bátana því hressa sumarskemmtunin Veislufjör 2012 er á leiðinni í heimsókn til ykkar. Snorri Helgason og hljómsveit hans, Mr Silla og spéfuglinn þjóðkunni, Hugleikur Dagsson, leggja í skemmtiferð hringinn í kringum landið með eitt sameiginlegt takmark; að skemmta landanum og frændfólki hans. Mr Silla leika lög af væntanlegri plötu, Snorri leikur safn laga af sínum tveim sólóplötum auk nýrra efnis og Hugleikur Dagsson fer með gamanmál og stýrir Veislufjörinu með skoplegum innskotum og óþarfa athugasemdum.

 

Hópurinn mun troða upp á skemmtunum í sjö bæjarfélögum á jafn mörgum dögum seinnipart júní en staðirnir sem verða heimsóttir að þessu sinni eru Höfn í Hornafirði, Seyðisfjörður, Húsavík, Flateyri, Patreksfjörður, Flatey á Breiðafirði og Hafnarfjörður, sannkallaður öfugur hringur. Á Seyðisfirði mun hópurinn sameinast Prinspóló, Ojba Rasta og Jónasi Sigurðssyni og Ritvélunum á tónlistarhátíðinni Partíþokunni sem mun standa yfir alla helgina í Herðubreið.

 

Það eru Kraumur, Cheap Jeep og Rás 2 sem eru sérstakir verndarar Veislufjörs 2012.

 

Miðasala fer fram við dyr á tónleikakvöldum.

Miðaverð 2000 kr.

 

21. júní – Pakkhúsið – Höfn í Hornafirði / Hefst kl 22:00

22. júní – Partyíþokan, Herðubreið – Seyðisfirði / Hefst kl 21:00

23. júní – Gamli Baukur – Húsavík / Hefst kl 22:00

24. júní – Vagninn – Flateyri / Hefst kl 20:00

25. júní – Sjóræningjahúsið – Patreksfirði / Hefst kl 20:00

26. júní – Hótel Flatey – Flatey á Breiðafirði / Hefst kl 20:00

27. júní – Bæjarbíó – Hafnarfiði / Hefst kl 20:00

 

Miðasala á Partíþokuna á Seyðisfirði fer fram á midi.is og á Hótel Aldan. http://midi.is/tonleikar/1/7031/

 

Facebook event: www.facebook.com/events/384851831572765/

 

Tónlistarmaðurinn Snorri Helgason hefur á undanförnum árum skapað sér gott orð í tónlistarheiminum bæði innanlands sem utan. Tónlist Snorra er nokkurs konar þjóðlagapoppbræðingur þar sem sterkar melódíur og kassagítarinn eru í forgrunni. Tónlist Snorra hefur verið líkt við söngvaskáld eins og Neil Young, Paul Simon og Harry Nilsson sem voru upp á sitt besta á árunum í kringum 1970.

 

Snorri hefur verið starfandi sem tónlistarmaður í u.þ.b. 5 ár og hefur gefið út 4 plötur, 2 með hljómsveitinni Sprengjuhöllin og tvær sólóplötur, I’m Gonna Put My Name On Your Door (2009) og Winter Sun(2011) sem allar hafa fengið mikið lof gagnrýnenda. Lag Snorra, Verum í Sambandi, vann meðal annars til íslensku Tónlistarverðlaunanna fyrir lag ársíns vorið 2008.

 

Hljómsveit Snorra Helgasonar er síbreytilegt fyrirbæri og núna skipa hana einungis tveir einstaklingar ásamt Snorra, þau Sigurlaug Gísladóttir(múm & Mr. Silla) sem syngur og spilar á ukulele og Guðmundur Óskar Guðmundsson(Hjaltalín, Borko, Heiðurspiltar o.fl.) sem spilar á rafbassa og barítóngítar.

 

River á KEXP

http://www.youtube.com/watch?v=eS5H7Y-ETR4

Mockingbird á KEXP

http://www.youtube.com/watch?v=WNe108cRRTY

 

Mr Silla er hljómsveit sem er stofnuð af söngkonunni og gítarleikaranum Sigurlaugu Gísladóttur (múm, mr silla & mongoose) og Gunnari Erni Tynes (múm, Andhéri) sem farartæki fyrir lagasmíðar Sigurlaugar en hún er einnig aðalsöngkona sveitarinnar. Þau kölluðu til liðs við sig gítarleikarann Gylfa Blöndal (kimono, Borko), bassaleikarann Halldór Örn Ragnarsson (Seabear),  gítar- og hljómborðsleikarann Kristinn Gunnar Blöndal (Bob Justman, Botnleðja, Ensími) og trymbilinn Magnús Trygvason Eliassen (amiina, Sin Fang, ADHD).  Gunnar Örn leikur á bassa, hljómborð og gítar auk þess sem að hann sér um upptökustjórn og eftirvinnslu. Hljómsveitin hyggur á útgáfu hljómplötu í sumar.

 

One Step á KEXP

http://youtu.be/Rkjd96-I5gk

Up/Down á KEXP

http://youtu.be/mlftJpAJX0s

 

Hugleikur Dagsson fæddist á Akureyri árið 1977.

Fyrstu tuttugu árin læddist hann meðfram veggjum og las Spider-man.

Árið 2002 útskrifaðist hann úr LHÍ og svo byrjaði hann að gefa út kúkabrandara í bókum. Kerskni hans smitaðist svo útí leikrit, sjónvarp og uppistand.

Comments are closed.