My Bubba & Mi gefa út Wild & You

Nýkántrí hljómsveitin My Bubba & Mi mun senda frá sér hljómplötuna Wild & You miðvikudaginn 1. ágúst næstkomandi. Hljómplatan er stuttskífa og inniheldur 5 lög eftir þær My Larsdotter og Guðbjörgu Tómasdóttur. Þær hafa starfað saman sem My Bubba & Mi undanfarin 4 ár og hafa áður gefið út breiðskífuna How It’s Done in Italy. Kimi Records gefur út Wild & You á Íslandi en platan kom út fyrr á árinu á vegum hollenska útgáfufélagsins Beep Beep. Samhliða útgáfu Wild & You mun fyrri plata hljómsveitarinnar verða fáanleg í helstu hljómplötuverslunum.

My Bubba & Mi mun fara í örlitla tónleikaferð um Ísland í lok ágúst og halda svo útgáfutónleika í Norræna húsinu þann 1. september. Hljómsveitin mun einnig koma fram á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves í byrjun nóvember.

Comments are closed.