Prinspóló undirbýr nýja plötu

Prinspóló er á fullu að undirbúa sína næstu breiðskífu. Síðasta breiðskífa kappans hlaut frábærar viðtökur enda með betri plötum sem komið hefur út á Íslandi síðastliðin ár. Prinsinn sendi nýverið frá sér lag sem væntanlega verður á nýju plötunni. Honum til halds og trausts í laginu er Árni Rúnar Hlöðversson úr Fm Belfast og hér má sjá afrakstur samstarfsins. Berglind Häsler gerði myndbandið ásamt prinsinum.

Comments are closed.