The Heavy Experience gefa út SLOWSCOPE

Kvintettinn The Heavy Experience mun gefa út plötuna SLOWSCOPE fimmtudaginn 16. ágúst næskomandi. Þetta er fyrsta breiðskífa sveitarinnar en áður hafa þeir gefið út samnenfnda stuttskífu, en hún kom út á 10 tommu hljómplötu síðla árs 2010 á vegum Kimi Records. Tónlist The Heavy Experience er illlýsanleg blanda drunutónlistar og djass; einföld en ákveðin, þunglamaleg en skýr.

SLOWSCOPE kemur  aðeins út á 12 tommu hljómplötu, en platan er skorin í 180 gramma jómfrúarvínylblöndu. Þess ber að geta að geisladiskur fylgir vínylplötunni. SLOWSCOPE er gefin út af Kimi Records og Úslandi, útgáfufélagi hljómsveitarinnar. Platan, sem inniheldur 6 frumsamdar tónsmiðar, var hljóðrituð og hljóðblönduð af sveitinni sjálfri í eigin hljóðveri en Finnur Hákonarson hljómjafnaði og undirbjó lokaafurð fyrir skurð.

The Heavy Experience hefur verið starfrækt frá árinu 2010 og er sveitin skipuð þeim Alberti Finnbogasyni, gítarleikara (Jarðfræðingur, Skelkur í Bringu, sóley, Swords of Chaos), Þórði Hermannssyni, bassaleikara (Tónsmiður, Enkidú, Heróglymur, Ólafur Arnalds), Brynjari Helgasyni (Myndlistarnemi, gítarleikara (Me, the Slumbering Napoleon, Carpet Show), Tuma Árnasyni, saxófónleikara (Frístundaleiðbeinandi, Just Another Snake Cult, Carpet Show) og Oddi Júlíussyni, trommuleikara (Leikaranemi, Doctuz, The Ministry of Foreign Affairs).

Comments are closed.